Kraftur Kötlu

Kraftur Kötlu er styrktar- og menntasjóður fyrir börn og fjölskyldur þeirra í þróunarlöndum. Sjóðurinn er minningarsjóður Kötlu Rúnar sem lést ung að aldri. Minning Kötlu er fólgin í sameiningakrafti, miðlun hjálpar og skilningi á misræmi tækifæra.

Aðkoman

Mörkun
Grafísk hönnun
Vefur

Merki

Aldeilis hannaði útlit merkisins og tekur það mið af persónulegu dálæti og hrifningu Kötlu Rúnar. Fiðrildi eru augnayndi flestra og eru þau táknrænn boðberi fegurðar, frelsis og friðar. Tákn merkisins endurspeglar þar með hjarta sjóðsins og tilgang.

Vefur

Vefhönnun og notendaupplifun vefsins er persónuleg og skýr. Áhersla var lögð á að hafa söguna á bak við sjóðinn og allar helstu upplýsingar hans í forgrunni, til að veita skýra sýn á markmið og hugmyndafræði hans.