Vefsíðugerð
Í hverju felst vefsíðugerð Aldeilis? Við vinnum að því að skapa veflausnir sem tengja saman fallega hönnun og einfalda og þægilega notendaupplifun. Við leggjum áherslu á að hver vefsíða úr okkar smiðju komi vel á framfæri markaðsáherslum eða markmiðum viðskiptavina okkar.
Hafðu samband með þitt verkefni og saman finnum við lausn við hæfi.


Þjónusta
- Þarfagreining
- Vefhönnun
- Vefsmíði
- Leitarvélabestun
- Prófanir
- Hýsingar og þjónusta
- Vefverslanir
- Tenging við upplýsingakerfi
- Sérlausnir
WordPress vefir
Aldeilis vinnur allar vefsíður í WordPress vefumsjónarkerfinu sem er stærsta vefumsjónarkerfið í heiminum í dag. WordPress er opið vefumsjónarkerfi sem er í stöðugri þróun og bregst því hratt við hröðum tæknibreytingum og breyttum kröfum internetsins. Ekki þarf að greiða aðgangsgjöld að kerfinu sjálfu. WordPress vefumsjónarkerfið er notendavænt og hægt að stilla á íslensku.